Ísland vann Dormagen í æfingaleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2008 20:40 Guðjón Valur var markahæstur í íslenska liðinu í kvöld ásamt Rúnari Kárasyni. Mynd/Pjetur
Íslenska handboltalandsliðið vann í kvöld sigur á þýska úrvalsdeildarfélaginu Dormagen í æfingaleik ytra, 34-28, eftir að hafa verið með átta marka forystu í hálfleik. Ísland komst mest í ellefu marka forystu í leiknum en Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var ánægður með framgöngu sinna manna. „Þetta var öruggt hjá okkur þó svo að við höfum óneitanlega slakað full mikið á síðustu fimmtán mínúturnar. En allir stóðu sig vel og ekki síst ungu strákarnir sem fengu mikið að spila í dag. Það skoruðu allir nema Sverre (Jakobsson) og Diddi (Ingimundur Ingimundarson) sem spiluðu vörn." Markahæstir í íslenska liðinu voru Rúnar Kárason og Guðjón Valur Sigurðsson með sex mörk hvor. Einar Hólmgeirsson kom næstur með fjögur mörk. Guðmundur var þjálfari Dormagen frá 1999 til 2001 og sagði að hann og íslenska liðið hafi fengið góðar móttökur í bænum. „Það var gaman að spila á gamla heimavellinum og minningarnar helltust yfir mann," sagði Guðmundur. Ísland mætir næst þýska landsliðinu í tveimur æfingaleikjum um helgina og segir Guðmundur að það verði erfið verkefni. „Þetta leggst vel í mig en þetta verður erfitt. Við erum með mikið breytt og ungt lið en við ætlum að gera það sem við getum." Fyrri leikurinn gegn Þjóðverjum verður klukkan 16.00 á laugardaginn en sá síðari á sunnudaginn klukkan 16.10.
Handbolti Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram Sjá meira