Niðursveiflan erlendis kom við kaunin á lífeyrissjóðum 19. september 2008 14:15
Lífeyrissjóðir á Íslandi fara ekki varhluta af þeim óróa sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum erlendis að undanförnu. Hinsvegar telja forráðamenn tveggja stærstu sjóðanna að þótt óróinn komi við kaunin hjá þeim sé það ekki umfram það sem gengur og gerist hjá öllum öðrum sem fjárfest hafa í erlendum bréfum og sjóðum. Tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi, eru með tæplega þriðjung af eignum sínum í erlendum sjóðum og hlutabréfum miðað við síðustu áramót. Í safninu hjá Gildi er að finna nöfn banka eins og Lehman Brothers sem nú er gjaldþrota og Morgan Stanley sem ekki er talinn standa vel að vígi í dag. Hjá Gildi um áramótin voru eignir í sjóðum og bréfum erlendis um 70 milljarðar króna af 240 milljarða heildarfjárfestingum sjóðsins. Hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna voru þetta 84 miljarðar af 260 milljörðum króna. Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis segir í samtali við Vísi að hvað Lehman Brothers varðar sé þar um eignastýringarsjóðað ræða sem var á vegum Lehman og að þeir muni ekki tapa því fé sem nemur 1,4 milljörðum kr. Gildi hefur þar að auki fjárfest beint í hlutabréfasjóði á vegum Morgan Stanley upp á tæpa 6 milljarða kr. „Þessar tölur eru frá síðustu áramótum og frá þeim tíma höfum við minnkað mjög erlenda áhættu okkar og skipt yfir í ríkisbréf," segir Árni. Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að þeir hafi ekki farið varhluta af óróanum sem ríkt hefur á mörkuðum erlendis. Aðspurður segir Þorgeir að þeir hafi það fyrir reglu að ræða ekki um einstakar fjárfestingar hjá sér. Hinsvegar hafi lífeyrissjóðurinn ekki verið með fjármuni í vörslu hjá Lehman Brothers eða Morgan Stanley.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira