Færðu milljarða fyrir greiðslustöðvun Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. október 2008 05:15 Björgólfur Thor Björgólfsson. Samson eignarhaldsfélag og Samson Global Holdings eru félög bæði í eigu Björgólfsfeðga. Annað átti bróðurpart í Landsbankanum og hitt á rúman þriðjung í Straumi. Fréttablaðið/Daníel
Sama dag og Samson eignarhaldsfélag fékk greiðslustöðvun, 7. október síðastliðinn, gerði Straumur-Burðarás upp kröfur og skuldir við félagið. Greiddir voru tæpir tveir milljarðar króna til Samson. Samson eignarhaldsfélag átti um 40 prósent í Landsbankanum og fór fram á greiðslustöðvunina eftir að ríkið tók bankann yfir. Straumur er í ríflega þriðjungseigu Samson Global Holdings. Samson eignarhaldsfélag og Samson Global Holdings eru bæði í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, staðfestir að „einhver greiðslujöfnun" hafi átt sér stað 7. október, en áréttar að það hafi hvorki verið að frumkvæði eða beiðni Samson eignarhaldsfélags. Samson er svo einnig í ábyrgð fyrir 207 milljónum evra (26 til 31 milljarðs króna eftir gengi) láns Landsbankans til XL Leisure Group sem varð gjaldþrota í september. Sú ábyrgð var færð um miðjan mánuðinn af Eimskipafélaginu yfir á Samson. Samson ætlar að fara fram á framlengingu greiðslustöðvunar eftir helgi, en komi til þess að félagið fari í þrot, tekur skiptastjóri afstöðu til krafna og tilfærslna fyrir greiðslustöðvunina.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira