Green sagður hafa hækkað tilboð sitt í skuldir Baugs 13. október 2008 12:13
Breski auðmaðurinn Philip Green er sagður hafa hækkað tilboð sitt í skuldir Baugs. Daily Mail hefur það eftir Green að svara verði tilboði hans innan tveggja sólarhringa annars verði ekkert af kaupnunum. Allar búðir Baugs í Bretlandi eru opnar í dag. Fullyrt er í Daily Mail að Green muni eiga fund með Gunnari Sigurðssyni, forstjóra Baugs, í dag til að fara yfir málið. Ekki náðist í Gunnar til að staðfesta það. Skuldirnar sem um ræðir standa á bak við tæplega 30 prósenta hlut í Moss Bros, 20 prósenta hlut í French Connection og 7 prósenta hlut í Debenhams. Auk þessara hluta telur eignasafn Baugs í Bretlandi stórverslanirnar House of Fraiser og Hamleys og hlut í matvörukeðjunni Iceland. Eins og fram kom í fréttum okkar í gær er talið nær útilokað að gengið verði að tilboði Green. Heimildir fréttastofu herma að fyrsta tilboð Greens hafi hljóðað upp á tæplega 10 prósent af heildarvirði skulda Baugs í íslensku bönkunum. Hann hafi hinsvegar hækkað tilboð sitt um þriðjung. Innlendir og erlendir lánadrottnar eru ekki sagðir geta unað við það að Green eignist Baug á brunaútsölu og því sé unnið að því að koma í veg fyrir það að verðmætin sem íslensku bankarnir liggja á gufi upp. Finnur Sveinbjörnsson, í skilanefnd Kaupþings, vildi ekki staðfesta að Green hafi sett tímaramma á tilboð sitt. Hermt hafði verið að búðir fyrirtækja Baugs yrðu lokaðar í dag en það reyndist rangt. Allar búðir Baugs í Bretlandi eru opnar í dag.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira