Viðskipti innlent

Yfir níu milljarða króna viðskipti með hluti í Landsbankanum

Það sem af er degi hafa viðskipti með hluti í Landsbankanum numið yfir 9 milljörðum króna. Þar var voru ein stök viðskipti í morgun upp á 4,5 milljarða króna.

Viðskipti með hluti í Kaupþingi hafa einnig verið umfangsmikil í dag en þau eru upp á tæpa 6 milljarða króna. Gengi Landsbankans hefur lækkað um 4,7 prósent það sem af er degi og gengi Kaupþings hefur lækkað um 4,3 prósent.

Viðskipti með hluti í Glitni hafa einnig verið lífleg eða yfir tæpa 2 milljarða kr. Gengið þar hefur lækkað um yfir 70%.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×