Áætlar að um 200 bankamenn séu í atvinnuleit í öðrum löndum 21. október 2008 13:19 Friðbert Traustason.
Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, áætlar að um helmingur þeirra bankastarfsmanna sem sagt hefur verið upp, eða um 200 manns, sé nú að leIta hófanna um atvinnu í öðrum löndum. Hér er átt við fyrverandi starfsmenn Landsbankans og Glitnis en ekki liggur enn ljóst fyrir hve mörgum verður sagt upp hjá Kaupþingi. Miðað við heildarfjölda starfsmanna Kaupþings megi áætla að uppsagnir þar verði um 100 manns eða svipað og hjá Glitni en starfsmannafjöldinn hjá þessum tveimur bönkum var svipaður. Friðbert segir að það sé einkum yngra starfsfólkið sem leiti fyrir sér um atvinnu erlendis. „Þetta fólk er yfirleitt með framhaldsmenntun á sínu sviði frá góðum skólum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum," segir Friðbert. Fram kemur í máli Friðberts að þeir sem voru tölvu- eða tæknimenntaðir hjá bönkunum ættu að geta fengið vinnu hjá öðrum íslenskum fyrirtækjum. „Við höfum mestar áhyggjur af framtíð fólks sem er á aldrinum frá þrítugu og upp undir fimmtugt," segir Friðbert. „Þetta fólk er yfirleitt bundið í báða skó hér heima, með börn í skólum og skuldbindingar hvað varðar fasteignir sínar svo dæmi séu tekin." Friðbert segir að SSF eigi nú samvinnu við marga aðila um að útvega þessu fólki vinnu. Megi þar nefna ráðningarstofur, háskóla, Nýsköpunarmiðstöð og þau fagráðuneyti sem hafa með bankamál að gera. „Svo má nefna að mörg fyrirtæki hér heima þurfa að endurskipuleggja rekstur sinn og hagræða og þá munu þau væntanlega leita til þessara starfsmanna í einhverjum mæli enda slíkar aðgerðir á sérsviði margra sem sagt hefur verið upp," segir Friðbert.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira