Róbert: Frábært að fá annað tækifæri gegn Fram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. október 2008 15:25 Róbert Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Róbert Gunnarsson og félagar í þýska úrvalsdeildarliðinu Gummersbach drógust í morgun gegn Fram í þriðju umferð EHF-bikarkeppninnar gegn Fram, gamla liði Róberts. Gummersbach og Fram voru saman í riðli í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum síðan en þá missti Róbert af Íslandsferðinni vegna fæðingar dóttur sinnar. En nú er ekki annað í spilunum en að hann komi með félaginu hingað til lands. „Síðasti leikur féll auðvitað í skuggann á því sem var að gerast hjá mér síðast en auðvitað hefði verið gaman að vera með í þeim leik. Það er því gaman að fá þetta tækifæri aftur og aðallega gaman að fá að koma heim og spila á Íslandi. Ekki skemmir fyrir að það er á móti Fram." Þetta er þriðja árið í röð sem Gummersbach mætir íslensku liði í Evrópukeppnunum en í fyrra var liðið með Val í riðli í Meistaradeildinni. Þá var Alfreð Gíslason þjálfari liðsins en hann er í dag þjálfari Kiel. „Ferðin til Íslands var mjög skemmtileg í fyrra en þá náðum við að þjappa okkur vel saman og fórum til að mynda í ferð á Vatnajökul. Ég veit nú ekki hvort að það verður eitthvað svipað núna." Sem fyrr segir var skipt um þjálfara fyrir tímabilið og þá urðu nokkrar breytingar á leikmannahópnum. Guðjón Valur Sigurðsson fór til Rhein-Neckar Löwen og Sverre Jakobsson til HK. Róbert segir að liðið sé enn að slípast saman. „Þetta hefur verið upp og niður. Við höfum ekki verið að tapa neinum óþarfaleikjum frá því að við töpuðum í fyrstu umferðinni. Annars hefur þetta verið bara ágætt en ekkert meira en það." Hann segir þó að liðið ætli sér stóra hluti í Evrópukeppninni. „Mitt persónulega markmið er allavega að komast í úrslitin og vinna þar. En það er ekkert sjálfgefið enda mörk sterk lið frá Þýskalandi, Danmörku og Spáni."
Handbolti Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira