Viðskipti innlent

Hitaveitugull lagt inn í Sparisjóðinn í Keflavík

Grindavíkurkaupstaður færði í gær 2 milljarða kr. inn á reikning í Sparisjóðnum í Keflavík en bæjarfélagið hefur verið með um 4 milljarða kr. inn á innlánsreikningi í Landsbankanum eftir sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja fyrr á árinu. Víkurfréttir greina frá þessu.

„Það er komið hitaveitugull í Sparisjóðinn," sagði Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík í samtali við Víkurfréttir. Aðspurð um hina tvo milljarðana sagðist hún ekki geta svarað því strax.

Undanfarið hafa staðið yfir björgunaraðgerðir vegna Sparisjóðsins í Keflavík sem stendur tæpt í ölduróti bankahörmunga. Meðal þátttakenda í þessari björgunaraðgerð eru Reykjanesbær, Grindavíkurbær, lífeyrissjóðir og fleiri aðilar.

Í síðustu viku gaf Reykjanesbær út skuldabréf upp á 2,5 milljarða kr. og var andvirðið lagt inn í Sparisjóðinn. Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri fagnaði þessari ákvörðun Grindvíkinga og sagði að margir fleiri aðilar hafi lagt sitt á vogarskálarnar að undanförnu til að styrkja rekstur Spkef.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×