Bretar lána Íslendingum 582 milljarða til að standa skil á Icesave 21. október 2008 22:40 Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta.
Breska fjármálaráðuneytið er að leggja lokahönd á lán til Íslendinga upp á þrjá milljarða punda, eða um 582 milljarða íslenskra króna. Þetta er fullyrt í breska viðskiptablaðinu Financial Times í kvöld. Þar er sagt að lánið sé hugsað til þess að íslensk yfirvöld geti staðið skil á skuldum vegna innlána breskra sparifjáreigenda hjá Icesave. Eins og Vísir greindi frá fyrr í kvöld er von á sendinefnd frá breska fjármálaráðuneytinu til landsins í vikunni og segir FT að tilgangur ferðarinnar sé að ganga frá skilmálum lánsins og hefur það eftir íslenskum ráðamönnum. Ekki hefur verið gengið frá upphæð lánsins en blaðið segir að búist sé við því að það verði um þrír milljarðar punda. Blaðið segir að það sé um þrjátíu prósent af landsframleiðslu Íslands, en samkvæmt útreikningum Vísis er það nær því að vera helmingur af landsframleiðslunni. Financial Times hefur eftir talsmanni breska fjármálaráðuneytisins að í kjölfar viðræðna Alistairs Darling og Geirs Haarde hafi verið ákveðið að senda menn til landsins til þess að handsala samning sem miðaði að því að bæta sparifjáreigendum í Bretlandi hlut sinn í Icesave. Þá er sagt að samkomulagið muni létta á þeirri spennu sem verið hefur á milli íslenskra og breskra yfirvalda undanfarið. Ekki er gert ráð fyrir að samningurinn nái til sveitarfélaga og ríkisstofnana sem áttu fé inni á reikningum Landsbankans. Að endingu er vitnað í Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sem segir að samkomulagið ætti að vera í höfn á miðvikudag, eða á morgun.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnendur og erlent félag kaupa Air Atlanta Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Sjá meira