Viðskipti innlent

Stoðir töpuðu 11,6 milljörðum eftir skatta

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða.
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða.

Stoðir, sem áður var FL Group, töpuðu 10,2 milljörðum króna fyrir skatta á öðrum ársfjórðungi 2008. Tap eftir skatta nemur 11,6 milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að tapið sé að mestu tilkomið vegna fjármagnskostnaðar og lækkunar á markaðsverðmæti eignarhlutar félagsins í Glitni banka.

„Á síðastliðnum mánuðum hafa Stoðir haldið áfram að endurskipuleggja eignasafn sitt og selt fjölmargar eignir. Hlutabréf félagsins voru skráð úr kauphöll í júní síðastliðnum, nafni félagsins var breytt í Stoðir í byrjun júlí og tilkynnt var um kaup félagsins á kjölfestuhlut í Baugi Group." Þá segir einnig að við lok annars ársfjórðungs hafi eigið fé Stoða verið 87 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall í fjárfestingastarfsemi 29,2%. „Eftir kaup á eignarhlut í Baugi Group verður eiginfjárhlutfall (proforma) í fjárfestingastarfsemi um 35%. Eignir félagsins við lok annars ársfjórðungs námu 352 milljörðum króna"

Jón Sigurðsson forstjóri Stoða, segir að afkoma félagsins á öðrum ársfjórðungi beri ótvíræð merki þess umróts sem einkennt hefur fjármálamarkaði frá miðju ári 2007. „Lækkun á gengi hlutabréfa og hár fjármagnskostnaður skýra tap fjórðungsins. Við höfum haldið endurskipulagningu félagsins áfram og hefur einn þáttur þess ferlis verið sala eigna sem ekki féllu undir breytta fjárfestingastefnu Stoða. Afskráning félagsins var mikilvægt skref og rökrétt að mínu viti, og hið sama má segja um breytingu á nafni félagsins; Stoðir gefa rétta mynd af núverandi starfsemi félagsins," segir Jón og bætir því við að með kaupum Stoða á Baugi Group aukist eigið fé Stoða um 25 milljarða króna „og Baugur Group bætist í hóp kjarnafjárfestinga félagsins, þar sem fyrir voru Glitnir, TM og Landic Property. Meginhlutverk Stoða er að efla og styðja þessi félög og veita þeim kjölfestu til framtíðar."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×