Viðskipti innlent

Viðskiptanefnd fjallar um Kaupþingsmillifærslur

Höfuðstöðvar Kaupþings á Íslandi.
Höfuðstöðvar Kaupþings á Íslandi.

Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins verða kallaðir fyrir viðskiptanefnd Alþingis, meðal annars til að veita upplýsingar um rannsókn á meintum millifærslum Kaupþings upp á tugi milljarða króna inn á erlenda reikninga.

Eins og greint hefur verið frá í fréttum okkar hefur Fjármálaeftirlitið, frá því í október, rannsakað meintar millifærslur upp á samtals hundrað milljarða króna frá Kaupþingi á Íslandi inn á erlenda bankareikninga.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur einnig fengið málið inn á borð til sín, en bíður nú eftir niðurstöðu rannsóknar Fjármálaeftirlitisins um hvort athæfið sé hugsanlega saknæmt. Málið verður tekið upp í viðskiptanefnd Alþingis.




Tengdar fréttir

Grunsamlegar millifærslur

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skoðar nú millifærslur upp á samtals hundrað milljarða króna frá Kaupþingi á Íslandi inn á erlenda bankareikninga. Grunur leikur á að stjórnendur bankans hafi fært vildarviðskiptavinum stórar fjárhæðir á silfurfati.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×