Segja Sterling selt á næstu dögum 23. október 2008 22:20 Almar Örn Hilmarsson er forstjóri Sterling.
Íslenskir eigendur danska flugfélagsins Sterling eiga nú í viðræðum um sölu á því og er búist við því að samningar náist næstu daga. Þetta kemur fram á fréttavef Jótlandspóstsins og er vitnað í heimildarmenn sem þekki vel til málsins. Segir blaðið að viðræður standi yfir við tvo til þrjá aðila um kaup á flugfélaginu og að viðræðum muni ljúka um helgina eða í síðasta lagi í lok næstu viku. Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, staðfestir við Jótlandspóstinn að eigendur félagsins eigi í viðræðum við hugsanlega fjárfesta. Hann geti hins vegar ekki tjáð sig frekar um málið. Þá viðurkennir hann að staðan hafi verið erfið að undanförnu vegna að þess að allt traust á fyrirtækjum tengdum Íslandi hafi horfið með fjármálakreppunni. ,,Hið mótsagnarkennda er þó að salan hjá okkur hefur aukist í fjármálakreppunni. Á síðustu þremur vikum hefur viðskiptavinum úr fyrirtækjageiranum fjölgað mjög. Viðskiptavinir, sem áður flugu með SAS, fljúga nú með okkur," segir Almar. Almar vill ekki tjá sig um hverjir vilji kaupa félagið eða hversu hátt verð verði greitt fyrir það en Jótlandspósturinn hefur eftir heimildarmönnum að það séu ekki Íslendingar. Sterling er nú í eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira