Bolton burstaði Sunderland 29. nóvember 2008 17:05 Johan Elmander skoraði tvívegis fyrir Bolton í sigrinum á Sunderland NordicPhotos/GettyImages
Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Bolton vann nokkuð óvæntan 4-1 stórsigur á Sunderland á útivelli þar sem Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði gestanna og átti stóran þátt í einu markanna. Djibril Cisse kom Sunderland yfir í leiknum en eftir það áttu heimamenn ekki möguleika og varð skelfilegur varnarleikur liðinu að falli í dag. Matthew Taylor jafnaði fyrir Bolton með skalla eftir undirbúning frá Grétari Rafni á 18. mínútu og skömmu síðar kom Gary Cahill liðinu yfir. Johan Elmander skoraði svo tvívegis í síðari hálfleiknum og færði lærisveinum Roy Keane fimmta tapið í sex leikjum. Sunderland er nú á fallsvæðinu í deildinni. Aston Villa missti af gullnu tækifæri til að komast í þriðja sæti deildarinnar þegar liðið gerði aðeins markalaust jafntefli við Fulham á heimavelli í bragðdaufum leik. Þetta var aðeins þriðja stigið sem Fulham nær í á útivelli alla leiktíðina. Wigan vann góðan 2-1 sigur á West Brom þar sem Emmerson Boyce skoraði sigurmark Wigan fimm mínútum fyrir leikslok. Þetta var fyrsta mark kappans í þrjú ár. West Brom átti ágætan leik í dag og átti ef til vill eitthvað skilið út úr leiknum, en liðið situr enn á botninum og hefur ekki haft heppnina með sér. Grannliðin Middlesbrough og Newcastle gerðu markalaust jafntefli á heimavelli Boro í fyrsta skipti í meira en 30 ár. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað en stigið dugði þó til að koma lærisveinum Joe Kinnear upp af fallsvæðinu á kostnað granna þeirra í Sunderland. Loks gerðu Stoke og Hull sanngjarnt 1-1 jafntefli í þokunni á Britannia vellinum í bragðdaufum leik þar sem segja má að Dean Windass hafi stolið senunni á varamannabekk Hull. Windass fékk að líta gula spjaldið fyrir að trufla Rory Delap oftar en einu sinni þegar hann var að taka sín frægu löngu innköst. Úrslitin í dag: Sunderland 1 - 4 Bolton 1-0 D. Cissé ('11) 1-1 M. Taylor ('18) 1-2 G. Cahill ('21) 1-3 J. Elmander ('39) 1-4 J. Elmander ('55)Wigan 2 - 1 West Brom 0-1 I. Miller ('47) 1-1 H. Camara ('61) 2-1 E. Boyce ('87)Stoke 1 - 1 Hull 0-1 M. King ('44) 1-1 R. Fuller ('73, víti)Aston Villa 0 - 0 Fulham Middlesbrough 0 - 0 Newcastle
Enski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Sjá meira