Reyna að rifta ákvörðun stjórnar gamla Kaupþings 4. nóvember 2008 18:36 Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings.
Skömmu eftir yfirlýsingu frá fyrrverandi stjórn Kaupþings sendi nýja stjórnin frá sér yfirlýsingu. Í fyrri yfirlýsingunni kemur fram að persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna hlutabréfakaupa í Kaupþing hafi verið felldar niður þann 25.september sl. Nýja stjórnin segir hinsvegar að hún ætli að fá álit utanaðkomandi lögmanns um hvort ákvörðunin sé riftanleg. Þegar slík álitsgerð liggi fyrir muni stjórn bankans innheimta umræddar kröfur. Yfirlýsingu stjórnar Nýja Kaupþings má sjá hér að neðan: „Stjórn Nýja Kaupþings banka hf. vill taka fram eftirfarandi vegna umræðna í fjölmiðlum nú síðustu daga um lánveitingar til starfsmanna gamla Kaupþings banka. Við stofnun hins nýja banka yfirtók hann lánveitingar til starfsmanna gamla bankans vegna kaupa þeirra á hlutabréfum í þeim banka. Engin lán tengdum hlutabréfakaupum hafa verið afskrifuð og engin áform hafa verið eða eru uppi um það. Umfang þessara lánveitinga er þekkt í heild sinni og þeir aðilar sem hlut eiga að máli. Ennfremur liggja fyrir lánssamningar einstakra lána og lánskjör. Persónuleg ábyrgð starfsmanna á lánunum var takmörkuð þegar söluréttur var felldur niður á árinu 2005. Persónuleg ábyrgð starfsmanna var síðan alfarið felld niður í september 2008. Stjórn Nýja Kaupþings banka hf hafði frumkvæði að því að fá utanaðkomandi álit lögmanns á því hvort ákvörðun frá því í september síðastliðnum væri riftanleg. Þegar slík álitsgerð liggur fyrir mun stjórn bankans innheimta kröfurnar í samræmi við það sem hér hefur verið rakið. Stjórn bankans hefur ekki tekið ákvörðun um annað en að haga innheimtu þessara lánveitinga með sambærilegum hætti og gagnvart öðrum viðskiptavinum bankans. Hlutaðeigandi starfsmenn bankans hafa jafnframt óskað eftir því að farið verði með uppgjör þessara lána með sambærilegum hætti og gildir um aðra viðskiptavini bankans."
Tengdar fréttir Felldu niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna hlutabréfakaupa Í tilkynningu frá fyrrverandi stjórn Kaupþings banka kemur fram að stjórnin hafi ákveðið á fundi sínum þann 25.september síðastliðinn að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna af lánum til hlutabréfakaupa í Kaupþing banka. 4. nóvember 2008 18:16 Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira
Felldu niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna hlutabréfakaupa Í tilkynningu frá fyrrverandi stjórn Kaupþings banka kemur fram að stjórnin hafi ákveðið á fundi sínum þann 25.september síðastliðinn að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna af lánum til hlutabréfakaupa í Kaupþing banka. 4. nóvember 2008 18:16