Atvinnulausir orðnir meir en níu þúsund talsins 19. desember 2008 08:46
Nú um miðjan desember stendur fjöldi atvinnulausra í rúmlega níu þúsund manns en það svarar til um 5,5% atvinnuleysis. Á aðeins tveimur mánuðum hefur ástandið versnað jafn mikið og á tveimur árum á erfiðleiktímabilinu í upphafi síðasta áratugar. Þetta kemur fram á vefsíðu ASÍ. Þar segir að miðað við tölur um skráð atvinnuleysi frá lokum nóvember koma flestir atvinnulausra úr mannvirkjagerð, þá úr verslun, iðnaði, flutningastarfsemi og ýmissi þjónustustarfsemi. Sömu tölur sýna einnig að langflestir atvinnulausra koma úr yngstu aldurshópunum frá 20 ára aldri. Alls voru 972 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok nóvember eða um fjórðungur allra atvinnulausra. Efnahagsþrengingar hafa margvísleg áhrif á vinnumarkaðinn, m.a. vinnutíma, atvinnuþátttöku og ákvarðanir um búferlaflutninga. Þegar sjást skýr merki um aukinn brottflutning erlendra starfsmanna. Í nýjustu vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar frá þriðja ársfjórðungi í ár mátti einnig sjá ákveðin merki um kólnun efnahagslífsins. Þannig dró örlítið úr atvinnuþátttöku frá sama tíma árið áður, hlutfall starfandi minnkaði og atvinnuleysi jókst. Horfur um atvinnuástand fara enn versnandi. Skýrustu vísbendingarnar um þetta eru fjöldi tilkynntra uppsagna. Alls hefur hátt í 5.000 manns verið sagt upp á árinu með hópuppsögnum. Stærstur hluti þeirra barst í október og miðað við 1-3 mánaða uppsagnarfrest má því búast við mikilli aukningu atvinnulausra a.m.k. fram í febrúar á næsta ári. Það mun draga úr áfallinu að stór hluti erlendra starfsmanna mun líklega hverfa heim á leið fyrr en seinna svo og að margir munu nýta sér möguleika til frekara náms nú þegar atvinnuhorfur versna.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira