Segir Þorstein Má ekki hafa farið með fleipur í Kastljósi 1. október 2008 14:21 Björn Ingi Sveinsson forstjóri Saxbygg.
Björn Ingi Sveinsson forstjóri Saxbygg og stjórnarmaður í Glitni segir að Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður bankans hafi ekki farið með fleipur í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Þá sagði Þorsteinn að boðað hefði verið til blaðamannafundar í Seðlabankanum áður en búið var að fá samþykki hjá stærstu hluthöfum bankans. Seðlabankinn sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að samþykki hefði verið komið þegar boðað var til fundarins. „Ég held að Þorsteinn Már sé ekki að fara með fleipur í þessu. Seðlabankastjóri verður að eiga það við sjálfan sig þegar hann reynir að bera þetta tilbaka," segir Björn Ingi sem sat stjórnarfund Glitnis í hádeginu. Björn segir fundinn hafa verið stuttan og vill lítið tjá sig um hvað þar var rætt, enda séu stjórnarmenn bundnir trúnaði um hvað fari fram á slíkum fundum. Aðspurður um hvenær hluthafafundur í Glitni verði boðaður segir hann að drög að því hafi verið lögð á fundinum en það skýrist með tilkynningu frá bankanum í dag eða á morgun. „Samþykktir félagsins kveða á um að boða verði til fundarins með viku fyrirvara, það verður því aldrei fyrr en í fyrsta lagi eftir viku." Beðið er með eftirvæntingu eftir niðurstöðu hluthafafundarins en þar mun koma í ljós hvort gengið verði að yfirtökutilboði Ríkisins á 75% hlut í bankanum.
Tengdar fréttir Davíð boðaði ekki til fundar án samþykkis hluthafa Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis var í viðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Þar fór hann yfir aðdragandann að yfirtöku Ríkisins á 75% hlut í bankanum. Í máli Þorsteins kom meðal annars fram að Davíð Oddsson formaður bankaráðs Seðlabankans hefði boðað til blaðamannafundar á mánudagsmorgun áður en búið var að fá samþykki hjá hluthöfum bankans. 1. október 2008 13:18 Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Sjá meira
Davíð boðaði ekki til fundar án samþykkis hluthafa Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis var í viðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Þar fór hann yfir aðdragandann að yfirtöku Ríkisins á 75% hlut í bankanum. Í máli Þorsteins kom meðal annars fram að Davíð Oddsson formaður bankaráðs Seðlabankans hefði boðað til blaðamannafundar á mánudagsmorgun áður en búið var að fá samþykki hjá hluthöfum bankans. 1. október 2008 13:18