Viðsnúningur á vöruskiptunum 31. október 2008 09:26
Hagstofan hefur birt tölur um vöruskipti við útlönd fyrstu níu mánuði ársins. Vöruskipti í september voru hagstæð um 7,8 milljarða króna. Í mánuðinum voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 42,4 milljarða króna. Þetta er töluverður viðsnúningur því í september í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 13,8 milljarða króna á sama gengi. Það sem af er ári er halli á vöruskiptunum upp á 42,6 milljarða sem er þó betri útkoma en fyrir ári þegar hallinn var 95,6 milljarðar. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 53,0 milljörðum króna hagstæðari nú en á sama tíma árið áður. „Fyrstu níu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 322,6 milljarða króna en inn fyrir 365,1 milljarð króna fob (396,2 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 42,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 95,6 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 53,0 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður," segir í frétt á heimasíðu Hagstofunnar. „Nú liggja fyrir nýjar upplýsingar um verslun með flugvélar við útlönd fyrir þriðja ársfjórðung. Helstu áhrif þeirra eru að tölur fyrir september sýna 7,8 milljarða króna afgang á vöruskiptum í stað þess að vöruskiptin væru í járnum eins og bráðabirgðatölur fyrir september gáfu til kynna. Hins vegar eykst halli júlímánaðar," segir einnig í fréttinni. „Fyrstu níu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 54,1 milljarði eða 20,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 53,1% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 35,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,2% minna en á sama tíma árið áður. Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka." „Fyrstu níu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,0 milljarði eða 0,3% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum." Nánar má kynna sér málið á heimasíðu Hagstofunnar.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira