Makrílinn er 5,3 milljarða kr. búbót fyrir sjávarútveginn 4. september 2008 10:55
Miðað við að útflutningsverðmæti af hverju tonni af makríl sé nálægt 50 þúsund kr. fyrir hvert tonn til vinnslu á mjöli og lýsi má gera ráð fyrir að útflutningsverðmæti makrílaflans í ár sé nú orðið um 5,3 milljarða kr. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að makríllinn muni hafa jákvæð áhrif á vöruskiptajöfnuðinn. Á móti kemur að veiðar á kolmunna hafa gengið treglegar í ár heldur en á fyrri árum. Það skýrist m.a. af því að fyrirtækin hafa sótt minna vegna hás olíuverðs. Íslensku uppsjávarveiðifyrirtækin hafa veitt 108 þúsund tonn af makríl það sem af er árinu en líklegt er að lítið muni veiðast til viðbótar á þessu ári. Þetta er mikil aukning frá árinu 2007 þegar veiddust ríflega 36 þúsund tonn. Makríllinn hefur mest veiðst í júlí og ágúst samhliða veiðum íslensku skipanna á norsk-íslenskri síld. Greining segir að makrílaflinn er kærkomin búbót fyrir sjávarútvegsfyrirtækin þar sem hann nýtist vel í mjöl- og lýsisframleiðslu auk þess sem hátt verð fæst fyrir frystan makríl. Þá hefur veik staða krónunnar einnig hjálpað til. Stærstur hluti aflans hefur þó farið í bræðslu. Þar sem makríll er ný nytjategund í íslenskri lögsögu hefur ekki verið gefinn út kvóti enn sem komið er. Ef makríll heldur áfram að ganga inn í íslenska lögsögu mun hins vegar væntanlega verða gefinn út kvóti sem byggður er á aflareynslu. Það skýrir m.a. hvers vegna stærstur hluti aflans hefur farið til bræðslu þar sem hægast er um vik að veiða og vinna mikinn makrílafla þegar sá háttur er hafður á.
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira