Grétar og Heiðar spiluðu í jafnteflisleik Elvar Geir Magnússon skrifar 29. janúar 2008 21:45 Sunderland vann mikilvægan sigur. Hér er markinu sem Daryl Murphy skoraði fagnað.
Leikjunum þremur í ensku úrvalsdeildinni sem hófust klukkan 20 er lokið. Sunderland og Middlesbrough kræktu í mikilvæg stig í botnbaráttunni. Grétar Rafn og Heiðar léku fyrir Bolton sem gerði jafntefli gegn Fulham. Bolton - Fulham 0-0 Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði Bolton og þá var Heiðar Helguson á bekknum og kom inn sem varamaður á 83. mínútu. Þetta er í fyrsta sinn síðan í ágúst í fyrra sem Heiðar er í leikmannahópi Bolton en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Jimmy Bullard var í byrjunarliði Fulham en hann er að jafna sig eftir aðgerð. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur hans í átján mánuði. Baráttan var allsráðandi í þessum leik. Grétar Rafn komst næst því að skora fyrir Bolton í fyrri hálfleiknum en skemmtileg skottilraun hans fór naumlega yfir. Ekkert var skorað í leiknum og Fulham er enn í næstneðsta sæti deildarinnar. Sunderland - Birmingham 2-0 Það var fallbaráttuslagur á Leikvangi ljóssins þar sem Birmingham kom í heimsókn. Phil Bardslay fór beint í byrjunarlið Sunderland en hann var keyptur frá Manchester United á dögunum. Daryl Murphy kom Sunderland yfir snemma leiks eftir sendingu frá Kenwyne Jones. Í seinni hálfleik skoraði síðan sænski framherjinn Rade Prica í sínum fyrsta leik fyrir Sunderland. Prica var keyptur í síðustu viku frá Álaborg í Danmörku. Middlesbrough - Wigan 1-0 Jeremie Aliadiere var hetja Middlesbrough. Hann skoraði sigurmarkið gegn Wigan í fyrri hálfleiknum. Það mark var ansi laglegt og þessi fyrrum leikmaður Arsenal sýndi frábæra afgreiðslu. Wigan náði ekki að svara og Gareth Southgate gat leyft sér að brosa enda ansi mikilvæg stig fyrir Middlesbrough í botnbaráttunni. Liðinu hefur gengið erfiðlega að skora en þetta eina mark í kvöld dugði til sigurs. Fimm leikir verða í deildinni á morgun.
Enski boltinn Mest lesið „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Lést í miðjum leik Fótbolti „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs Körfubolti Fram - ÍBV | Nýliðarnir mæta til leiks Íslenski boltinn Viktor Gísli áfram í stuði Handbolti Fleiri fréttir Liverpool - Crystal Palace | Leita að þriðja sigrinum í röð Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Sjá meira