Vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 128 milljarða 4. september 2008 16:23
Seðlabankinn hefur birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins. Viðskiptajöfnuður var óhagstæður á öðrum ársfjórðungi um 128 milljarða króna og ræður tap á beinni fjárfestingu Íslendinga erlendis, svokölluð endurfjárfesting, mestu þar um. „Halli þáttatekna hefur ekki áður mælst jafn mikill, og skýrist breytingin að mestu af tapi á beinni fjárfestingu. Vaxtakostnaður vegna erlendra skulda hefur einnig hækkað." Vöruskipti í fjórðungnum voru nánast í jafnvægi en þjónustujöfnuður var neikvæður um 9,4 milljarða króna. Gengisáhrif voru fremur lítil í ársfjórðungnum, að því er fram kemur í tilkynningu Seðlabankans. Þá segir að hreint fjárútstreymi hafi numið 55,5 milljörðum króna á tímabilinu en á fyrsta ársfjórðungi var fjárinnstreymi 133,2 ma.kr. „Erlendir aðilar eru taldir eiga 64,7 ma.kr. af þeim 75 ma.kr. innstæðubréfum sem Seðlabankinn gaf út á fyrri hluta árs 2008. Bein fjárfesting útlendinga hér á landi lækkaði um 107,6 ma.kr. sem stafar að mestu af lánahreyfingum sem tengjast tilfærslu fyrirtækja á milli landa en bein fjárfesting Íslendinga erlendis hækkaði um 10,8 ma.kr. Verðbréfaeign erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfum hækkaði um 286,5 ma.kr." „Skekkjuliður í ársfjórðungsuppgjörinu er stór en jákvæður að þessu sinni og fer nærri að hann vegi upp neikvæðan skekkjulið síðustu fjögurra ársfjórðungsuppgjöra," segir einnig og bent á að reynsla Seðlabankans sé sú að skekkjuliður skýrist oftast af ónógum upplýsingum um fjármagnshreyfingar. Hrein staða við útlönd var neikvæð um 2.095 milljarða í lok annars ársfjórðungs og versnaði um 27 milljarða í ársfjórðungnum. Endurmat á hreinni stöðu í lok síðasta árs leiddi til 196 milljarða bata. Að síðustu segir Seðlabankinn að heimtur á skýrslum frá þeim aðilum sem ber að upplýsa bankann um erlend viðskipti hafi batnað að undanförnu en samt er nokkuð um að þær berist seint. „Slíkt hamlar vinnslu við uppgjör greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu og dregur úr nákvæmni og upplýsingagildi uppgjöranna. Hvetur Seðlabankinn þá sem skila eiga skýrslum um erlend fjármagnsviðskipti og stöðu eigna og skulda til að gera enn betur."
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækkunin kosti lánþega tugi þúsunda á ári Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Sjá meira