Ísland gæti orðið nær óháð erlendum orkugjöfum 7. september 2008 17:06
Ísland gæti innan skamms orðið nær óháð erlendum orkugjöfum samhliða komandi fjöldaframleiðslu á rafmagns- og tengil-tvinnbílum Stefnumarkandi fundur bílaframleiðenda og orkufyrirtækja í Reykjavík verður haldinn í september. Stærstu bílaframleiðendur heims, helstu orkufyrirtæki Norðurlanda og leiðandi alþjóðleg fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í rafvæðingu samgangna koma saman í Reykjavík átjánda og nítjánda september næstkomandi til að ræða komandi byltingu í rafmagnssamgöngum á næstu fimm árum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari ráðstefnunnar Driving Sustainability, alþjóðlegs vettvangs fyrir orkulausnir í samgöngum og mun opna hana klukkan 09:05 að morgni fimmtudagsins 18. september. Hátt settir stjórnendur bílaframleiðendanna Toyota, Ford, og Mitsubishi munu á ráðstefnunni veita innsýn í tæknilausnir sem miða að sjálfbærum samgöngum og munu standa neytendum til boða frá næsta og þarnæsta ári. Stærstu orkufyrirtæki Norðurlanda, Vattenfall í Svíþjóð og Dong Energy í Danmörku, vinna nú hörðum höndum að innleiðingu rafmagns í samgöngum, og munu þau skýra ráðstefnugestum frá áætlunum sínum. Hækkandi olíuverð, hröð þróun í rafhlöðum og hátækni leiðir þessa byltingu. Volvo og Saab eru í samstarfi við Vattenfall um innleiðingu tengil-tvinnbíla í Svíþjóð, en þeim bílum má stinga í samband og aka tugi kílómetra á rafmagni áður en hefðbundin bílvél tekur við. Renault-Nissan samsteypan er hins vegar í samstarfi við Dong Energy, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur um innleiðingu rafmagnsbíla og rafhlöðuskiptistöðva þar í landi ásamt bandaríska fyrirtækinu Better Place. Þá munu yfirmenn Mitsubishi Heavy Industries í Japan fjalla um hlutverk bifreiða í sjálfbærum orkuinnviðum og Mitsubishi Motors kynna rafmagnsbílinn MiEV en fjöldaframleiðsla á honum hefst á næsta ári.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Sjá meira