Peningamarkaðssjóðir leystir upp Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. október 2008 18:00 Fólk ætti brátt að fá inn á bankareikninga hluta eignar sinnar í peningamarkaðssjóðum bankanna. Hversu mikið skilar sér af fjárfestingum fólks á eftir að koma í ljós. Fréttablaðið/GVA
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur beint þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að grípa til aðgerða sem leiða til þess að peningamarkaðssjóðum félaganna verði slitið. Fólk sem fjárfest hefur í slíkum sjóðum má því eiga von á að fá úr þeim greiðslu inn á bankareikninga sína. Byrjað verður á því að endurgreiða fólki laust fé í sjóðunum í hlutfalli við eignarhlut hvers og eins í þeim. Hversu mikið endanlega skilar sér svo af fjárfestingum fólks á eftir að koma í ljós. „Þeim tilmælum er beint til rekstrarfélaganna að ekki verði opnað fyrir innlausnir í sjóðunum, heldur að sjóðsfélagar fái greitt úr þeim. Í því felst að allt laust fé hvers peningamarkaðssjóðs verði greitt inn á innlánsreikninga sjóðsfélaga í hlutfalli við eign þeirra og jafnræði þeirra verði haft að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu sem FME sendi frá sér síðdegis í gær. Í tilmælum eftirlitsins er einnig lagt til að greitt verði mánaðarlega inn á innlánsreikninga sjóðsfélaga í samræmi við hlutfallslega eign þeirra eftir því sem aðrar eignir sjóðsins fást greiddar, allt þar til engar eignir verði eftir í eignasafni sjóðanna. Ekki liggur fyrir hversu langan tíma gæti tekið að gera upp sjóðina, en samkvæmt heimildum blaðsins er það verið mismunandi eftir sjóðum, sem séu mismunandi að gerð og samsetningu.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fleiri fréttir Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Sjá meira