Viðskipti innlent

Lánshæfismat ríkissjóðs hjá R&I lækkað

MYND/GVA

Japanska matsfyrirtækið R&I Rating tilkynnti í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir erlendar skuldbindingar í AA úr AA+.

Þetta kemur fram á vef Seðlabankans. Er þetta gert í kjölfar þess að tillkynt var um kaup ríkisins á 75 prósenta hlut í Glitni. Þá segir á vef Seðlabankans vegna þess að ekki sé hægt að útiloka frekari aðgerðir til stuðnings íslenska fjármálakerfinu í heild hafi R&I einnig sett lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á eftirlit fyrir hugsanlega lækkun. Áður hafa borist fregnir af því að matsfyrirtækið Standard og Poors hefði lækkað lánshæfismat ríkisins vegna sömu tíðinda.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×