Saka Seðlabankann um eignaupptöku 29. september 2008 19:00
Stjórn Stoða, stærsta hluthafa Glitnis, sakar Seðlabankann um eignaupptöku og segir hluthafa Glitnis hafa tapað á annað hundrað milljörðum á aðgerðum stjórnvalda í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni. Þar segir enn fremur að í kjölfar þvingaðrar yfirtöku Seðlabankans og ríkisvaldsins á Glitni hafi stjórn Stoða óskað eftir greiðslustöðvun. ,,Ef yfirtakan verður samþykkt á hluthafafundi Glitnis lætur nærri að eignarhlutur Stoða í Glitni lækki um 50 milljarða króna. Eigið fé Stoða nam um 87 milljörðum króna við lok annars ársfjórðungs og fjárhagsstaða Stoða er því í miklu uppnámi," segir enn fremur í tilkynningunni. Þar kemur enn fremur fram að héraðsdómur hafi heimilað greiðslustöðvun til 20. október. Þá átelur stjórn Stoða harðlega vinnubrögð bankastjórnar Seðlabankans. ,,Ljóst má vera að Glitnir þurfti á aðstoð Seðlabankans að halda vegna lausafjárvanda sem bar brátt að. Rekstur Glitnis hefur hins vegar verið með ágætum, bankinn skilað góðum hagnaði og eigið fé Glitnis nam um 200 milljörðum króna um mitt þetta ár. Það er mat stjórnar Stoða að Seðlabankinn hafi haft aðra og farsælli kosti í stöðunni en að taka Glitni yfir. Harkalegt inngrip Seðlabankans er ekkert annað en eignaupptaka þar sem hluthafar Glitnis tapa vel á annað hundrað milljörðum króna," segir í tilkynningunni. Þá segja Stoðamenn að Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafi stillt stjórn og stærstu eigendum Glitnis upp við vegg í skjóli nætur og þeir hafi því ekki átt aðra kosti en að samþykkja tillöguna. ,,Atburðarásin var með þeim hætti að ekkert tóm gafst til að leita annarra lausna, frekar en að meta heildaráhrif aðgerðanna á íslenskt fjármálalíf. Stjórn Stoða harmar þessar aðgerðir og lýsir fullri ábyrgð á afleiðingum þeirra á hendur bankastjórnar Seðlabankans.," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira