Viðskipti innlent

Century Aluminum hækkar mest í byrjun dags

Úr álverinu á Grundartanga.
Úr álverinu á Grundartanga.
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, hefur hækkað um 1,65 prósent í dag og er það mesta hækkun dagsins. Þá hafa bréf Færeyjabanka hækkað um 0,59 prósent, stendur í 170 dönskum krónum á hlut og hefur ekki verið hærra síðan í enda síðasta árs. Að öðru leyti er lækkun í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Existu hefur lækkað mest, eða um 2,26 prósent, eftir mikla hækkun síðustu tvo viðskiptadaga. Þá hefur gengi Eimskipafélagsins lækkað um 1,35 prósent og Landsbankans um 1,3 prósent. Gengi bréfa í Atorku, Bakkavör, Straumi, Icelandair, Glitni og Kaupþingi hefur lækkað um tæpt prósent. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,61 prósent í byrjun dags stendur í 4.161 stigi. Þetta er nokkuð minni lækkun en á öðrum norrænum hlutabréfamörkuðum í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×