Alcoa gerir samning við verkfræðifyrirtækið HRV 13. nóvember 2008 15:36
Tíu til tuttugu tækni- og verkfræðingar frá íslenska verkfræðifyrirtækinu HRV Engineering munu starfa við álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði samkvæmt nýjum samningi fyrirtækjanna. HRV Engineering mun sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið. Verðmæti samningsins nemur hundruðum milljóna króna á ári. Í tilkynningu um málið segir að samningurinn feli í sér að sérfræðingar HRV Engineering munu sinna ráðgjöf og þjónustu við þróun og innleiðingu tækninýjunga, viðhald, umhverfismál, öryggi, velferð starfsmanna og ýmislegt annað sem tengist rekstri og starfsemi álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Sérfræðingar HRV Engineering munu starfa í álverinu en njóta stuðnings frá skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík og skrifstofum Mannvits og Verkíss á Egilsstöðum. „Nýting endurnýjanlegra orkuauðlinda Íslands til álframleiðslu hefur skapað gríðarlega sérþekkingu á þessu sviði á Íslandi og verið grundvöllur fyrir vöxt HRV Engineering sem þekkingarfyrirtækis. Nýr samningur við Alcoa Fjarðaál tryggir áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna og mikilvæga þekkingarmiðlun í báðar áttir milli Austurlands og höfuðstöðva okkar í Reykjavík. Samningurinn er því einnig mikilvægur fyrir áframhaldandi útflutning HRV Engineering á þekkingarverðmætum sem sköpuð hafa verið í íslenskum áliðnaði" segir Símon Þorleifsson sem stýrir ráðgjöf vegna rekstrar og viðhalds álvera hjá HRV Engineering. „Álframleiðsla er flókið ferli og álver í dag eru í raun jafnt þekkingarfyrirtæki og framleiðslufyrirtæki. Samningurinn við HRV Engineering er liður í þeirri stefnu Alcoa Fjarðaáls að útvista sem mest af verkefnum til samstarfsaðila. Markmiðið með þeirri stefnu er að skapa umhverfi fyrir starfsemi annarra fyrirtækja á svæðinu, sem er mjög mikilvægt fyrir uppbyggingu sjálfbærs samfélags á Austurlandi," segir Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupa hjá Alcoa Fjarðaáli.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira