Viðskipti innlent

Íbúðaverð lækkar um 4% yfir árið

Greiningadeild Glitnis spáir því að íbúðaverð muni lækka um 4% yfir þetta ár. Draga muni úr eftirspurn á íbúðamarkaði á næstu mánuðum vegna lánsfjárþurrðar, minnkandi kaupmáttar, versnandi stöðu á vinnumarkaði og væntinga um verðlækkanir íbúðarhúsnæðis.

„Allt þetta leggst á eitt og myndar töluverðan þrýsting til verðlækkunar. Þá hefur framboð íbúðarhúsnæðis aukist undanfarið bæði vegna mikils fjölda nýbygginga og aukins framboðs af notuðu húsnæði. Reikna má með því að enn bætist í framboðið á næstunni sem eykur þrýsting til verðlækkunar," segir í Morgunkorni Glitnis.

Greiningadeildin spáir því að íbúðaverð lækki um 4% yfir næsta ár. Framhald verði á lítilli eftirspurn á markaðinum og talsverðu framboði. Atvinnuástand muni versna og kaupmáttur vaxa hægt. Aðgengi að lánsfjármagni verði heft fram eftir ári og fjármagnskostnaður hár. Greiningadeild spáir að íbúðaverð hækki um 3% árið 2010 samhliða því að ytri skilyrði íbúðamarkaðarins batni - lánsfjárframboð aukist, atvinnuástand breytist til hins betra á nýjan leik og kaupmáttur vaxi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×