Kompásárás hefði getað leitt til heilaskaða 23. september 2008 19:45
Maður leitaði nýlega til slysadeildar Landspítalans brotinn á fótum - að eigin sögn eftir aðfarir handrukkara með hafnarboltakylfu. Þetta segir Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir slysa- og bráðadeildar. Hann segir að árásin sem sýnd var í Kompási hefði getað leitt til heilaskaða. Kompás sýndi í gær myndskeið þar sem Benjamín Þorgrímsson meintur handrukkari gengur í skrokk á Ragnari Magnússyni fyrrum veitingamanni. Benjamín hefur verið ákærður fyrir þessa árás sem telst minniháttar. Fréttastofa sýndi yfirlækni slysadeildar myndskeiðið í dag og innti hann álits á því hvaða afleiðingar árásin hefði getað haft. Spörkin hefðu því getað leitt til heilaskaða, augnskaða og beinbrota í andliti. Þótt þetta tilvik sé talið vera vegna handrukkunar - er þetta nokkuð dæmigerð íslensk líkamsárás segir Ófeigur. Svona spörk í höfuð séu stórhættuleg. Talið er að tugir handrukkarar séu á Íslandi en sárasjaldgæft er að fólk komi illa farið eftir handrukkun á slysadeild, segir Ófeigur. Ragnar fullyrti í Kompási að lögreglumaður - og kunningi árásarmannsins - hafi latt hann til að kæra Benjamín við skýrslutöku. Stefán Eiríksson lögreglustjóri sagði í samtali við fréttastofu að hraði rannsóknar málsins - sem hefði nú leitt til ákæru - sýndu að þessar aðdróttanir eigi ekki við rök að styðjast.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Fleiri fréttir Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira