Guðbjörg gat selt á fyrirfram ákveðnu verði 6. október 2008 18:43 Guðbjörg Matthíasdóttir
Glitnir banki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Vísis og Stöðvar 2 um sölu Guðbjargar Matthíasdóttur á stórum hluta af bréfum sínum í Glitni síðasta virka daginn fyrir þjóðnýtingu. Vegna fréttaflutnings á Stöð 2, í Fréttablaðinu og á vísir.is þess efnis að „Guðbjörg Matthíasdóttir hafi selt lungann úr 1,71% hluti sínum Glitni á fimmtudaginn 25. eða föstudaginn 26. september korteri áður en bankinn var þjóðnýttur", þá vill Glitnir taka fram eftirfarandi: Umrædd sala félags í eigu Guðbjargar á hlutum í Glitni byggði á samningi, dags. 4. september 2007, sem veitti félagi í eigu Guðbjargar rétt til að selja hluti í Glitni á fyrirfram ákveðnu tímabili og á fyrirfram ákveðnu verði. Tímabil þetta var frá 25. september 2008 til og með 27. september 2008. Var umrædd sala þannig í fullu samræmi við efni viðkomandi samnings og með öllu óviðkomandi atburðum sem áttu sér stað helgina 27. - 28. september og sem tilkynnt var um að morgni mánudagsins 29. september. Glitnir harmar að fjölmiðlar skuli láta í veðri vaka með óábyrgum fréttaflutningi að umrædd sala hafi tengst fyrrgreindum atburðum, þegar salan þvert á móti byggði á skýru orðalagi ársgamals samnings sem átti samkvæmt orðum sínum að efna á þeim tíma sem hann var efndur. Árétting frá fréttastjóra: Ásökunum Glitnis um óábyrgan fréttaflutning er vísað á bug. Ítrekað var reynt að afla upplýsinga um sölu Guðbjargar á hlutnum og þá á hvaða gengi Guðbjörg hefði selt hlutinn. Enginn svör fengust úr herbúðum Glitnis og heldur ekki frá Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, ráðgjafa Guðbjargar, sem neitaði að gefa upp sölugengi á hlutnum. Ítrekað var reynt að ná í Guðbjörgu við vinnslu fréttarinnar en án árangurs. Hins vegar skal það leiðrétt að Gunnlaugur Sævar var ekki veislustjóri í fimmtugsafmæli Davíðs Oddssonar eins og hermt var í fréttinni. Hann var veislustjóri í fimmtugsafmæli Kjartans Gunnarssonar sem var aftur veislustjóri í fimmtugsafmæli Davíðs Oddssonar
Mest lesið Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Play tekur flugið til Agadir Viðskipti innlent Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Viðskipti innlent Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Viðskipti innlent Ætla ekki að láta norska olíusjóðinn sniðganga Ísrael Viðskipti Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Viðskipti innlent Arion vill sameinast Kviku Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samáls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Sjá meira