Viðskipti innlent

Gjaldþrot XL hefur áhrif á afkomu Eimskips

Gylfi Magnússon er forstjóri Eimskips.
Gylfi Magnússon er forstjóri Eimskips.

Eimskip segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands vegna gjaldþrots XL Leisure Group í Bretlandi að ábyrgð Eimskipafélagsins vegna Jointrace Ltd, móðurfélags XL, muni falla á félagið og þá um leið hafa áhrif á efnahag og afkomu Eimskips.

Bent er á að í tilkynningu Eimskips til Kauphallar á miðvikudag hafi komið fram að sterkir fjárfestar undir forystu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar myndu kaupa kröfuna félli hún á félagið. Fjárhæð kröfu vegna sölu XL og flugrekstrarleyfisábyrgða, sem ofangreindir fjárfestar hafa lýst sig reiðubúna að kaupa, er um 26 milljarðar íslenskra króna. „Eins og fram hefur komið mun fyrrnefndur hópur fjárfesta fresta gjalddaga kröfunnar eftir að hafa tekið hana yfir.

„Jafnframt er fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum annarra lánardrottna á hendur Eimskip. Auk þess er Eimskip í ábyrgð vegna flugvélaleigusamninga eins og fram kemur í ársskýrslu félagsins, en fjárhagsleg áhrif vegna þeirra eru enn óljós," segir í tilkynningu Eimskips.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×