Gamli Glitnir fær greiðslustöðvun eins og gamla Kaupþing 24. nóvember 2008 16:15 MYND/Heiða
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni gamla Glitnis um greiðslustöðvun. Gildir hún til föstudagsins 13. febrúar á næsta ári. Fram kemur í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis að nauðsynlegt hafi verið að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans. „Greiðslustöðvunin mun einnig veita Glitni svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember," segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að Steinunn Guðbjartsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hún mun starfa með skilanefnd bankans sem mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hennar eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna. Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í tvö ár. Fyrr í dag barst tilkynning frá gamla Kaupþingi sama efnis og hefur bankinn einnig fengið greiðslustöðvun til 13. febrúar.
Tengdar fréttir Gamla Kaupþing fær greiðslustöðvun Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka hf. heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24. nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. 24. nóvember 2008 15:26 Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira
Gamla Kaupþing fær greiðslustöðvun Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka hf. heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24. nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. 24. nóvember 2008 15:26