Viðskipti innlent

Gamli Glitnir fær greiðslustöðvun eins og gamla Kaupþing

MYND/Heiða

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni gamla Glitnis um greiðslustöðvun. Gildir hún til föstudagsins 13. febrúar á næsta ári. Fram kemur í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis að nauðsynlegt hafi verið að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB.

Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans.

„Greiðslustöðvunin mun einnig veita Glitni svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember," segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að Steinunn Guðbjartsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hún mun starfa með skilanefnd bankans sem mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hennar eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna. Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í tvö ár.

Fyrr í dag barst tilkynning frá gamla Kaupþingi sama efnis og hefur bankinn einnig fengið greiðslustöðvun til 13. febrúar.








Tengdar fréttir

Gamla Kaupþing fær greiðslustöðvun

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka hf. heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24. nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×