Telur jafnvægisgengi krónunnar á bilinu 135-145 22. september 2008 10:42
Greining Glitnis telur að jafnvægisgengi krónunnar á næstu árum muni liggja á bilinu 135-145. Sem stendur er gengisvísitalan í um 170 stigum. Fjallað er um gengið í Morgunkorni greiningarinnar. Miðað við ákveðnar forsendur og samband verðlags og nafngengis krónu við raungengið, telur greiningin að gengisvísitala krónu sem samrýmist ytra jafnvægi þjóðarbúsins núna og á allra næstu árum liggi á bilinu 135-145.„Miðað við það virðist ljóst að þótt leiðréttingar hafi verið þörf á gengi krónu eftir tímabil hágengis og mikils ytra ójafnvægis er nú um yfirskot að ræða í þeirri miklu gengisveikingu sem orðið hefur frá síðustu áramótum," segir í Morgunkorninu.„Slíkt yfirskot getur hins vegar varað talsvert lengi, sér í lagi þegar aðstæður bæði á heimsvísu sem á hérlendum gjaldeyrismarkaði eru jafn óvenjulegar og raun ber vitni, og gerum við því ekki ráð fyrir að krónan leiti jafnvægis fyrr en alþjóðlegu lánsfjárkrísunni fer að linna og markaðir að færast nær eðlilegu horfi."Hvað forsendurnar varðar segir greiningin að útlit sé hinsvegar fyrir að verð útflutningsvara haldist hátt og hrávöru- og eldsneytisverð láti heldur undan síga á komandi árum frá núverandi gildum. Þá er talið að framþróun hagkerfa leiði að öðru jöfnu til þess að jafnvægisraungengi þeirra hækkar í samanburði við önnur lönd þar sem þróunin er hægari.Miðað við þær grundvallarbreytingar sem orðið hafa á íslensku efnahagslífi undanfarin 20 ár og þann myndarlega vöxt sem fylgt hefur, má álykta að slík þróun hafi að einhverju marki átt sér stað hérlendis, þótt ekki sé rétt að gera ráð fyrir miklum breytingum af þessum sökum.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Sjá meira