Forysta SA heimsækir ESB í Brussel 26. september 2008 09:38
Forysta Samtaka atvinnulífsins heimsækir Evrópusambandið í Brussel í byrjun næstu viku. Samtökin munu hitta og ræða við valda aðila innan og utan ESB. „Ferðin er liður í umræðum innan aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu," segir Þór Sigfússon, formaður SA í tilkynningu um ferðina. „Markmið okkar með þessari ferð eru að fá nánari vitneskju um hvernig evrópsku atvinnulífi farnast innan ESB, hver sé líkleg þróun ESB á næstu árum og hvernig efla megi samskipti íslensks atvinnulífs og ESB." Fjölmörg málefni verða til umfjöllunar, m.a. gjaldmiðilsmál, sjávarútvegsmál, aðgangur að innri markaði ESB og orkumál ásamt mikilvægi rannsókna og nýsköpunar. Þá munu fulltrúar SA kynna sérstaklega árangur íslensks atvinnulífs á liðnum misserum. „Við Íslendingar eigum að leggja miklu meiri rækt við að kynna á vettvangi ESB árangur okkar á ýmsum sviðum atvinnulífsins og hvað megi læra af honum. Þar standa upp úr mál eins og stjórnun fiskveiða og rekstur í sjávarútvegi ásamt árangri okkar í orkumálum. Þá hef ég fundið fyrir miklum áhuga forystu atvinnulífsins í ýmsum Evrópuríkjum á árangri okkar í uppbyggingu nýrra háskóla sem atvinnulífið hefur komið beint að hérlendis," segir Þór.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent