Greiningardeildir benda á loðið orðalag hjá Seðlabankanum 26. september 2008 16:49
Greiningardeildir bæði Kaupþings og Landsbankans telja ástæðu til að benda á loðið orðalag í fréttatilkynningu Seðlabanka Íslands um viðræðurnar við Seðlabanka Bandaríkjanna. Í Hálf fimm fréttum greiningar Kaupþings segir að í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Seðlabankans Íslands (SB) eftir lokun markaða í dag kom fram að SB hafi átt í viðræðum við Seðlabanka Bandaríkjanna um gerð álíkra gjaldmiðlaskiptasamninga og aðrir norrænir Seðlabankar hafa gert við hann. Það er Svíþjóð, Danmörk og Noregur. Orðrétt segir síðan. „Ekki voru taldar ástæður eða efni til þess að gera á þessu stigi samning við Seðlabanka Íslands. Alls ekki væri þó útilokað að slíkur samningur yrði gerður síðar ef aðstæður gefa tilefni til." Þessi yfirlýsing Seðlabanka Íslands er því torskiljanleg þar sem ekki kemur fram hvor aðilinn taldi ekki ástæðu til þess að gera slíkan samning. Ljóst er að frá sjónarhóli Íslendinga hljóta „ástæður og efni" að vera fyrir slíkum samning þar sem nú ríkir lausafjárkrísa á erlendum mörkuðum, nafngengi krónu er undir þrýstingi og raungengi krónu er í sögulegu lágmarki. Hér gildir hið fornkveðna að oft var þörf en nú er nauðsyn. Þessi yfirlýsing er því nokkuð tvíræð - en sýnir kannski einna helst að enn sé langt bíða einhverra aðgerða frá Seðlabanka Íslands á gjaldeyrismarkaði. Greining Landsbankans segir í Vegvísi sínum um fyrrgreind setningu í tilkynningu Seðlabankans: "Ekki er hægt að skilja þetta öðruvísi en að það hafi verið bandaríski seðlabankinn sem taldi ástæðulaust að greiða fyrir aðgangi þess íslenska að Bandaríkjadölum."
Mest lesið Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Sjá meira