Kiel svo gott sem meistari eftir tap Flensburg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2008 15:03 Alexander Petersson í leik með Flensburg. Nordic Photos / Bongarts
Kiel er svo gott sem orðið þýskur meistari í handbolta eftir að helstu keppinautar þeirra um titilinn, Flensburg, tapaði fyrir Magdeburg á útivelli í dag. Tap Flensburg þýðir að Kiel er með þriggja stiga forystu á Flensburg þegar tvær umferðir eru eftir. Kiel þarf því að sigra annað hvort Göppingen eða Wetzlar í síðustu tveimur viðureignunum til að tryggja sér titilinn. Kiel hefur aðeins tapað þremur leikjum í vetur en þetta var fjórða tap Flensburg. Magdeburg vann leikinn með fjögurra marka mun, 32-28. Alexander Petersson og Einar Hólmgeirsson skoruðu eitt mark hver fyrir Flensburg í leiknum. Kiel spilar ekki í deildinni um helgina þar sem það mætir Ciudad Real í fyrri viðureign liðanna í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Lemgo vann tveggja marka sigur á Lübbecke, 33-31. Logi Geirsson skoraði fjögur mörk fyrir Lemgo en Birkir Ívar Guðmundsson var í leikmannahópi Lübbecke í dag. Þá gerðu Wilhelmshaven og Grosswallstadt jafntefli, 30-30. Gylfi Gylfason skoraði tvö mörk fyrir Wilhelmshaven en markahæstur í því liði var Sven Christopherson sem skoraði átján mörk fyrir Wilhelmshaven. Göppingen vann útisigur á Essen, 30-27, og skoraði Jaliesky Garcia sex mörk fyrir fyrrnefnda liðið. Lemgo er nú jafnt Gummersbach að stigum en liðin eru í 6.-7. sæti deildarinnar og eiga engan möguleika að ná Nordhorn, sem er í fimmta sæti, að stigum. Útlitið er dökkt fyrir Íslendingaliðin Lübbecke og Wilhelmshaven en liðin eru í botnsætum deildarinnar með fjórtán stig hvert. Essen er í þriðja neðsta með fimmtán stig og Minden í því fjórða neðsta með sextán. Tvö neðstu liðin falla en þriðja neðsta tekur þátt í umspilskeppni ásamt liði úr annarri deildinni um laust sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti LeBron James yfirgefur Lakers Körfubolti Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Fótbolti Fleiri fréttir Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Sjá meira