Gengisfall krónunnar hefur hækkað verulega skuldir heimilanna 4. nóvember 2008 11:50
Skuldir heimila við innlánsstofnanir jukust um 23% frá áramótum til septemberloka, að mestu leyti vegna beinna og óbeinna áhrifa af gengisfalli krónunnar. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að alls voru skuldir heimilanna við banka og sparisjóði tæplega 1.030 milljarðar kr. í lok september samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans fyrir bankakerfið. Þar af voru tæplega 277 milljarðar kr. í formi gengisbundinna lána og verðtryggð lán námu rúmum 625 milljörðum kr. Athygli vekur að á þriðja fjórðungi ársins hækkuðu skuldir heimila við innlánastofnanir um 8,4%, en á því tímabili var lítið um ný útlán til heimila og má gera ráð fyrir að þessi aukning sé að langstærstum hluta vegna áhrifa af gengisfalli krónu á höfuðstól gengistryggðra lána annars vegar, og verðbótaþáttar verðtryggðra lána hinsvegar. Greining segir að aukin greiðslubyrði af skuldum er heimilunum verulegur fjötur um fót um þessar mundir, auk þess sem hækkandi höfuðstóll gengis- og verðtryggðra lána hefur rýrt eiginfjárstöðu margra verulega. Um mitt ár voru heildarskuldir íslenskra heimila við lánakerfið í heild, þ.e. alla lánveitendur í einkageira sem hinum opinbera, 1.760 milljarða kr. Um það bil þrír fjórðuhlutar þessara skulda voru verðtryggðir og í kring um 15% voru í formi gengistryggðra lána. Síðan þá hefur vísitala neysluverðs hækkað um tæplega 6% og gengi erlendra gjaldmiðla gagnvart krónu hækkað um rúm 37%, ef miðað er við gengisvísitölu.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira