Ólíklegt að Baugur kaupi Saks á þessu ári 5. september 2008 11:16 Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs.
Bandaríska dablaðið the New York Post segist í dag hafa heimildir fyrir því að ólíklegt sé að Baugur kaupi verslunarkeðjuna Saks á þessu ári. Blaðið vitnar til orða Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs sem sagði fyrir um mánuði síðan að Baugur væri mjög áhugasamur um að kaupa keðjuna. Baugur á í dag um átta prósenta hlut í keðjunni, en Saks Fifth Avenue í New York, flaggskip keðjunnar, er ein frægasta verslun heims. Heimildir blaðsins herma hinsvegar að ólíklegt sé að tilboð verði lagt fram á þessu ári. Ummæli Jóns Ásgeirs í ágúst féllu í kjölfar þess að ársfjórðungsuppgjör keðjunnar var gert opinbert en það sýndi tap á rekstri félagsins sem var meira en búist hafði verið við. Í kjölfar ummælana hækkuðu bréf í félaginu um fimm prósent á einum degi í kauphöllinni og hafa þau hækkað nokkuð á tímanum sem liðinn er. New York Post vitnar hins vegar í heimildarmann „úr innsta hring" sem segir að versnandi horfur á fjármálamörkuðum heimsins og skortur á lansfé geri það að verkum að kaup Baugs á Saks á þessu ári séu „nær óhugsandi" við núverandi aðstæður. Það er sérstaklega ný afkomuspá fyrir Saks, sem gerir ráð fyrir minni hagnaði fyrir afskriftir og skatta, sem minnkar líkurnar á því að yfirtaka borgi sig í nánustu framtíð.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira