Telur ekki útilokað að stýrivextir hækki frekar á næstunni 28. október 2008 11:52
Greining Glitnis telur ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir frekar á næstu vikum. Meginatriðið í því er hvernig muni ganga að fleyta krónunni. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að markmiðið sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) setti fram með ríkisstjórninni nú fyrir helgi er að halda krónunni stöðugri. Með þeim hætti ætti verðbólgan að hjaðna hratt á næstunni. Vaxtahækkunin er ætluð til þessa og hluti af áætlun IMF og stjórnvalda að aflétta hömlum á gjaldeyrismarkaði og fleyta krónunni á næstunni en með háum vöxtum er líklegra að hún verði varin frekara falli. Seðlabankinn segir að framleiðsluslaki og jafnvægi eða afgangur í utanríkisviðskiptum munu stuðla að hækkun á gengi krónunnar að því tilskildu að traust hafi skapast á gjaldeyrismarkaði. Gangi það eftir að halda krónunni stöðugri og jafnvel styrkja hana má reikna með því að verðbólgan hjaðni hratt þegar kemur fram á næsta ár. Reikna má með því að bankinn muni halda vöxtum háum vel fram yfir áramót en forsendur fyrir hraðri lækkun stýrivaxta mun skapast með ört hjaðnandi verðbólgu á næsta ári. Vaxtaákvörðunardagur bankans er eftir níu daga en samhliða mun bankinn birta nýja verðbólgu- og efnahagsspá. Innlend eftirspurn þarf ekki hjálp við að hverfa þessa daganna. Atvinnuleysið hefur stigið hratt undanfarið, væntingar minkað umtalsvert og samdráttur er verulegur í allri neyslu og fjárfestingu. Vaxtahækkunin er því ekki til að hjálpa til við að berja þróttinn úr innlendri eftirspurn.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira