Spánverjar tryggðu sér Ólympíusætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. júní 2008 14:02 Mahmoud Gharbi reynir að verjast Spánverjanum Ruben Garabaya í leiknum í dag. Nordic Photos / AFP
Spánn vann í dag nauman sigur á Túnis í undankeppni Ólympíuleikanna í handbolta og tryggðu sér þar með sæti á leikunum í Peking í sumar. Frakkar eru sömuleiðis komnir áfram upp úr riðlinum en Noregur og Túnis sitja eftir með sárt ennið. Spánn vann eins marks sigur, 29-28, en hann var þó alls ekki öruggur. Túnis var með yfirhöndina, 27-26, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en Spánverjar skoruðu þá tvö mörk í röð og komust yfir, 28-27. Spánverjar fengu tækifæri til að auka muninn í tvö mörk þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka en létu verja frá sér úr opnu færi. En Norðmönnum til mikillar gremju misstu Túnisbúar boltann klaufalega í næstu sókn og Spánverjar komust tveimur mörkum yfir þegar mínúta var eftir, 29-27. Túnis tókst að skora þegar ellefu sekúndur voru eftir en nær komust þeir ekki. Spánverjar eru þar með komnir með fjögur stig í riðlinum, rétt eins og Frakkar en Noregur og Túnis eru einungis með eitt stig. Leikur Frakka og Norðmanna síðar í dag hefur því enga þýðingu því bæði Spánn og Frakkland eru búin að tryggja sér sitt sæti á Ólympíuleikunum í Peking. Albert Rocas skoraði sjö mörk fyrir Spán, Iker Romero sex og Ruben Garabaya fimm. Hjá Túnis var Aymen Hammed markahæstur með sjö mörk. Anouar Ayed skoraði sex og Mahmoud Gharbi fjögur.
Handbolti Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira