Viðskipti innlent

Ríkissjóður þarf að greiða út 50 milljarða kr. á morgun

Ríkissjóður þarf að öllum líkindum að greiða út yfir 50 milljarða kr. á morgun vegna gjalddaga ríkisbréfa. Erlendir fjárfestar geta væntanlega á sama tíma keypt gjaldeyri fyrir upphæð sem samsvarar vaxtagreiðslum til þeirra, og gætu þau kaup hlaupið á 6-8 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að slíkir vaxtagreiðsludagar virðast raunar vera eina leið erlendra fjárfesta til að selja krónur fyrir erlendan gjaldeyri um þessar mundir.

Vaxtagjöld teljast til þáttagjalda og falla því innan þeirrar skilgreiningar Seðlabankans á gjaldeyrisviðskiptum tengdum viðskiptajöfnuði sem heimilar eru samkvæmt nýlegum reglum bankans.

Miklar vangaveltur hafa verið á markaði um hvort veruleg gjaldeyriskaup muni eiga sér stað á morgun samhliða gjalddaga ríkisbréfaflokksins RIKB 08 1212. Líklega má rekja veikingu krónunnar í gær og fyrradag að einhverju leyti til þess að seljendur gjaldeyris haldi að sér höndum fram á morgundaginn í von um að fá þá betra verð fyrir hann.

Áhugi fjárfesta á nýjum ríkisbréfaflokki, RIKB 10 1210, var fremur dræmur í fyrsta útboði þess flokks í gær. Alls bárust tilboð í þann flokk að fjárhæð tæplega 20 milljarða kr. og var tilboðum tekið fyrir 11,5 milljarða kr. að nafnvirði. Ávöxtunarkrafa í útboðinu var 14,25%.

Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að Seðlabankinn muni taka í taumana ef útlit er fyrir verulega veikingu krónu vegna útflæðis tengt þessum vaxtagreiðslum. Gæti hann til að mynda gripið til þess ráðs að greiða hinum erlendu fjárfestum beint af gjaldeyrisforða sínum eða lagt til gjaldeyri á millibankamarkað.

"Verður fróðlegt að sjá hvað verður uppi á teningnum á morgun í þessu efni því það mun væntanlega gefa ákveðið fordæmi fyrir komandi vaxtagreiðsludaga ríkistryggðra bréfa," segir í Morgunkorninu








Fleiri fréttir

Sjá meira


×