Alfesca hefur áhyggjur af erfiðri greiðslumiðlun til og frá landinu 6. nóvember 2008 11:29
Alfesca hefur áhyggur af því að erfiðleikar við greiðslumiðlun til og frá landinu muni hafa áhrif á greiðslu félagsins á skuldabréfi þann 15. nóvember n.k..Þetta kemur fram í greinargerð til Fjármálaeftirlitsins. Í greinargerðinni segir að þótt Alfesca sé skráð í íslensku kauphöllinni hafa sviptingarnar í íslenskum efnahagsmálum ekki haft bein áhrif á rekstur Alfesca enda er félagið ekki með neina sölustarfsemi á Íslandi. Helstu markaðir félagsins eru á meginlandi Evrópu og þá sérstaklega í Bretlandi, Frakklandi og á Spáni. Heildarsala Alfesca á fjárhagsárinu 2007/08 nam 647,4 milljónum evra og hafði aukist um 9% frá fyrra ári. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 62,5 milljónum evra eða um 10 milljörðum kr. sem er 22% aukning frá fyrra ári. Nettóskuldir félagsins 30. júní 2008 námu 166,7 milljónum evra. Þar sem helstu viðskiptagjaldmiðlar Alfesca eru evra og sterlingspund hefur gengisfall íslensku krónunnar hvorki haft áhrif á afkomu félagsins né fjárhagsstöðu þess. „Þann 15. nóvember næstkomandi ber Alfesca að greiða skuldabréf í íslenskum krónum að fjárhæð sem svarar til um 12 milljóna evra eða tæplega 2 milljörðum kr... Ennfremur eru íslensk skuldabréf að fjárhæð sem samsvarar um 3 milljónum evra,eða tæplega 500 milljónum kr. á gjalddaga 1. Febrúar 2009 í samræmi við skilmála skuldabréfanna. Alfesca hefur þegar tryggt fjármagn til greiðslu þessara skuldabréfa. En vegna takmarkana og tæknilegra erfiðleika í tengslum við erlenda greiðslumiðlun á Íslandi er sú hætta fyrir hendi að tafir kæmu upp og að umræddar upphæðir verði ekki millifærðar á gjalddaga. Alfesca vinnur nú að lausn málsins í samvinnu við íslenskar fjármálastofnanir," segir í greinargerðinni. Þess má geta að í ljósi aðstæðna á fjármálamörkuðum telur stjórn Alfesca viðeigandi að félagið haldi í fjármuni sína. Þess vegna hefur stjórnin ákveðið að mæla ekki með greiðslu 12 milljóna evra arðs vegna fjárhagsársins 2007/08 á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 18. nóvember næstkomandi.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira