Velyky greindur aftur með krabbamein Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2008 15:37 Oleg Velyky. Nordic Photos / Bongarts
Sjúkra- og meiðslasaga þýska handboltakappans Oleg Velyky ætlar engan endi að taka. Hann greindist nýverið með krabbamein í annað skipti á fimm árum. Velyky sleit krossbönd í hné eftir aðeins fjögurra mínútna leik í fyrsta leik Þjóðverja á EM í Noregi. Þá var hann samt búinn að skora tvö mörk í leiknum en tók vitanlega ekki meira þátt í mótinu. Þetta var í annað sinn á tveimur árum sem hann sleit krossbönd í hné. Árið 2007 meiddist hann svo á hásin. Honum tókst þó að sigrast á húðkrabbameini árið 2003 og hóf fljótlega að spila handknattleik á nýjan leik. Í lok árs 2006 samdi hann við Hamburg til þriggja ára en var svo seldur til Rhein-Neckar Löwen í janúar síðastliðnum, skömmu áður en EM í Noregi hófst. Þrátt fyrir að krabbameinið hafi tekið sig upp á nýjan leik segist hann í samtali við þýska fjölmiðla ætla sér að spila handbolta á nýjan leik. „Það þýðir ekkert að kvarta," sagði Velyky. „Ég lít jákvæðum augum á lífið og lít björtum augum á framtíðina. Læknarnir hafa sagt að ef meðferðin gengur vel get ég byrjað að spila fljótlega aftur. Ég kem aftur!" Þjálfari Rhein-Neckar Löwen, Martin Schwalb, segist vart trúa öllu þessu. „Þetta er afskaplega sorglegt." Forseti Hamburg, Andreas Rudolph, tók í svipaðan streng. „Við munum styðja Oleg eins mikið og við getum. Hann hefur þurft að þola svo mikið að hann mun standa þetta af sér líka. Og við viljum hjálpa honum og fjölskyldu hans við að ná því."
Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Fleiri fréttir FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Sjá meira