Húsnæðislán bankanna nema 500 milljörðum króna 7. október 2008 12:30 MYND/E.Ól
Verðtryggð húsnæðislán bankanna nema tæplega 500 milljörðum króna samkvæmt tölum Seðlabankans. Vitnað er til þessara talna í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis þar sem sem fjallað er um þá heimild Íbúðalánasjóðs að kaupa eða endurfjármagna húsnæðislán bankanna. Sú heimild var veitt í nýjum lögum stjórnvalda sem ætlað er að koma stöðugleika á íslenskt efnhagslíf.Greiningardeildin bendir á að ekki sé tekið til í lögunum sjálfum hvers konar lán sé um að ræða en í athugasemdum með frumvarpinu sé lagt til að ráðherra geit sett frekari fyrirmæli í reglugerð. „Framkvæmd yfirtöku lána í innlendri mynt liggur nokkuð beint fyrir þar sem unnt er að fjármagna hana með útgáfu íbúðabréfa. Framkvæmd yfirtöku lána í erlendri mynt á eftir að útfæra nánar, meðal annars með tilliti til þess hvort lánað verði áfram í erlendri mynt eða hvort skipt verður yfir í krónur. Óvissa í þeim efnum snýr bæði að fjármögnum ÍLS á lánunum sem og útfærslu sem snýr að lántaka sjálfum. Verði skipt yfir í krónur er spurning á hvaða gengi skiptin munu fara fram," segir greiningardeildin.Hún bætir við að fjármögnun Íbúðalánasjóðs vegna þessa verði væntanlega mætt með aukinni útgáfu íbúðabréfa. „Samkvæmt tölum Seðlabankans um bankakerfi námu verðtryggð húsnæðislán bankanna tæplega 500 mö.kr. í lok ágúst. Ef stærstur hluti þeirra lána verður fluttur undir hatt ÍLS má reikna með miklu framboði nýrra íbúðabréfa á næstu dögum og vikum. Væntingar um aukið framboð íbúðabréfa kom strax fram í kröfuþróun en krafa íbúðabréfa hækkaði strax í upphafi dags um 23-98 punkta," segir í Morgunkorninu.Greiningardeildin telur um jákvæðar aðgerðir að ræða og þær muni koma sér vel fyrir heimilin. „Í niðursveiflu eins og líklegt er að víð séum að sigla inn í er mikilvægt að skaði heimilanna verði sem minnstur. Niðursveiflur í hagkerfum sem rekja má til niðursveiflu á húsnæðismarkaði eru gjarnan bæði dýpri og lengri en niðursveiflur sem snerta ekki húsnæðismarkaðinn. Aðgerðir stjórnvalda til að bægja erfiðleikum á fjármálamarkaði frá húsnæðismarkaði og þar með heimilunum dregur því úr hættu á miklum og löngum samdrætti í hagkerfinu," segir greiningardeild Glitnis.
Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira