Guðjón Valur: Ökklinn á lífi og ég spila Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar 23. ágúst 2008 09:47 Guðjón Valur Sigurðsson á æfingu íslenska landsliðsins í morgun. MYND/Vilhelm
Guðjón Valur Sigurðsson tók þátt í lokaæfingu landsliðsins fyrir úrslitaleikinn gegn Frökkum í dag. Það eru góð tíðindi enda stöðvaðist hjarta margra Íslendinga skamma stund er hann lá í gólfinu meiddur á ökkla gegn Spánverjum. Var ljóst að þar fór þjáður maður. Guðjón Valur er aftur á móti annálað hörkutól og hefur leikið frábærlega í þessari keppni þó svo hann sé í raun meiddur á ökklanum og hafi þurft að sleppa fyrsta leik í keppninni. „Ökklinn er á lífi og tilbúinn í að minnsta kosti einn leik í viðbót. Ég get lofað fólki því. Þetta var bara athyglissýki og aumingjaskapur í gær. Við segjum það núna fyrir leik en sjáum svo hvernig ég verð eftir leikinn. Það verður bara teipað og bitið á jaxlinn," sagði Guðjón Valur við Vísi eftir æfinguna í dag. Hann fékk lítinn svefn í nótt líkt og félagar hans. „Nóttin var stutt eða svefninn hið minnsta. Ég lá bara upp í rúmi og horfði glottandi upp í loftið eins og bjáni og náði ekkert að sofna. Annars settumst við fljótlega niður eftir komuna upp í þorp, ræddum málin og reyndum að ná okkur niður á jörðina svo við gætum farið að einbeita okkur að úrslitunum," sagði Guðjón Valur sem telur fínt að mæta Frökkum í úrslitum. „Það virðast öll liðin hér alltaf óska þess að mæta okkur. Það telja sig öll vera búin að vinna fyrirfram en Frakkarnir hafa reyndar verið það lið sem er duglegast við að vanmeta okkur ekki. Þeir taka alltaf vel á því gegn okkur. Þeir eru frábærir en við höfum sýnt hvers við erum megnugir í þessu móti. Við erum að fara í úrslitaleikinn til þess að taka þátt og taka á þeim af fullum krafti," sagði Guðjón.
Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira