Landsbankinn fagnar aðgerðum ríkisstjórnarinnar 29. september 2008 12:33 Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans. „
Skjótar og ákveðnar aðgerðir yfirvalda í dag bera vott um skýran vilja til þess að styrkja stoðir íslensks efnahagslífs og fjármálakerfis." Þetta segir í yfirlýsingu frá Landsbankanum. Segir þar enn fremur að stjórnendur bankans telji aðgerðir ríkisstjórnarinnar jákvæðar og til þess fallnar að styrkja efnahagskerfið í heild sinni auk þess sem þær muni leiða til frekari sameiningartækifæra hérlendis. „Nú er rúmt ár síðan áhrifa lánsfjárkreppu fór að gæta á fjármálamörkuðum heimsins. Atburðir síðustu vikna, sem hafa haft áhrif á stærstu fjármálafyrirtæki heims, marka án efa spor í söguna og munu að líkindum breyta fjármálaheiminum varanlega," segir í yfirlýsingu bankans.´ Þá segir: „Landsbankinn hefur valið sér viðskiptamódel sem er blanda af viðskiptabankastarfsemi og fjárfestingarbankastarfsemi, þ.e. alhliða banki sem byggir á traustri stöðu á viðskiptabankamarkaði bæði á einstakling- og fyrirtækjamarkaði en með eignastýringu og fjárfestingarbankastarfsemi sem mikilvægar stoðir í heildarstarfseminni. Hátt hlutfall innlána á móti útlánum, 63 prósent, er bankanum einnig mikill styrkur. Þetta er viðskiptamódel sem markaðsaðilar eru sammála um að geti staðist það mótlæti sem fjármálafyrirtæki glíma nú við. Lausafjárstaðan sterk Lausafjárstaða Landsbankans er sterk og endurgreiðsluferill bankans léttur eða aðeins 855 milljónir evra á tímabilinu 2H08 - 1H09. Þann 29. september var lausafjárstaða bankans 8,0 milljarðar evra, samanborið við 7,8 milljarða evra 30. júní. Jákvæðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú í morgun undirstrika staðfestu stjórnvalda til að styrkja íslenska fjármálageirann og gera hann betur í stakk búinn að takast á við þá markaðsröskun sem nú á sér stað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum."
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira