Viðskipti innlent

Alfesca selur Christiansen Partner

Xavier Govare, forstjóri Alfesca
Xavier Govare, forstjóri Alfesca
Alfesca hefur selt norska fiskölufyrirtækið Christiansen Partner AS til til CP

Holding AS, fyrirtækis sem er undir stjórn John Synnes, framkvæmdastjóra

Christiansen Parter.

Þessi sala markar tímamót því nú á Alfesca ekki lengur neina aðild að sölu á

óunnum fiski enda er það stefna fyrirtækisins að einbeita sér að framleiðslu og markaðssetningu á unnum matvælum segir í tilkynningu frá félaginu.

Afkoma Christiansen Partner verður skilgreind sem aflögð starfsemi í reikningum Alfesca fyrir fjárhagsárið sem lýkur í júní 2008. Heildarvelta Christiansen Partner nam 25,4 milljónum evra á fjárhagsárinu 2006/7. Bókfært virði heildareigna fyrirtækisins sem var selt nam €2,5 milljónum í lok síðasta árs. Reiknað er með að þessi sala nú muni hafa óveruleg en þó frekar jákvæð áhrif á afkomu Alfesca.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×