Byggðastofnun tekur lán með 145 punkta skuldatryggingarálagi 23. september 2008 12:38
Byggðastofnun hefur tekið 3,2 milljarða króna lán í evrum og jenum. Skuldatryggingarálagið á láninu nemur 145 punktum sem telja verður allgott miðað við aðstæður. Askar Capital hafði milligöngu um lántökuna sem var gerð við erlendan banka. Lántakan er liður í fjármögnun útlána stofnunarinnar, en meðal hlutverka Byggðastofnunar er að undirbúa, skipuleggja og fjármagna verkefni og veita lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi á landsbyggðinni. Þessi lántaka treystir enn frekar stöðu Byggðastofnunar til að gegna hlutverki sínu. Askar Capital á í samstarfi við fjölda banka víða um heim og leitaði tilboða hjá þeim vegna lántöku Byggðastofnunar. Tilboð sem bárust voru metin út frá kjörum og fleiri þáttum. Askar Capital veitir stærri fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum aðstoð við áhættustýringu og fjármögnun. „Í ljósi erfiðra aðstæðna á lánamarkaði er afar ánægjulegt hve vel gekk að ljúka þessari erlendu lántöku, og er það til merkis um sterka stöðu stofnunarinnar. Þetta eru mjög góð tíðindi fyrir okkur og traustvekjandi að sjá að erlendir bankar hafa trú á því sem við erum að gera," segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar. „Byggðastofnun er traustur lántakandi og fékk góðar viðtökur hjá þeim bönkum í tengslaneti okkar sem sérhæfa sig í lánveitingum til stofnana og sveitarfélaga. Miðað við núverandi stöðu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum gefur þessi lántaka tilefni til bjartsýni," segir Þórður Jónasson, framkvæmdastjóri hjá Askar Capital.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira