Ein lánalína til og frá landinu 3. nóvember 2008 18:49
Ef Sparisjóðabankinn fer í þrot, sem líkur eru á að gerist, verður hér aðeins ríkisbankastarfsemi. Það þýddi ein lánalína til og frá landi með tilheyrandi áhættu, segir bankastjóri Sparisjóðabankans. Stundum er sagt að bankakerfið sé eins og vatnsveita. Þú kemur inn til þín, skrúfar frá krananum og ert í raun ekkert að velta fyrir þér hvaðan vatnið kemur eða hvert það fer. Sama gildir um bankakerfið, þú kemur inn tekur lán og ert í raun ekkert að athuga hvaðan peningarnir koma. Hingað til hafa þær komið úr öllum áttum. Nú er staðan þó önnur. Lánastarfsemi er takmörkuð og þær fjölmörgu lánalínur sem til staðar voru, eru horfnar. Í staðin er ein lánalína, eitt greiðslumiðlunarkerfi til JP Morgan Chase og þeir sjá um öll okkar mál í gegnum sitt net. Ef það bregst, erum við í vanda. Sparisjóðabankinn er enn með lánalínur sínar til staðar og við verðum að halda því þannig. Svona lýsir bankastjóri Sparisjóðabankans, áður Icebank, kerfinu. Sparisjóðabankinn fær frest frá Seðlabankanum til miðvikudags í næstu viku til að setja fram rúmlega 60 milljarða króna í auknum veðum til Seðlabankans en frestur hefur verið veittur í tvíganga. Agnar segist bjartsýnn að ásættanleg niðurstaða fáist því ríkisbankarnir séu ekki líklegir til að geta sett upp sitt eigið greiðslumiðlunarkerfi á komandi árum. Og hann spyr hvort Ríkisbankaland með takmarkaðar leiðir í viðskiptum sé spennandi kostur og sú leið sem við viljum fara.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira