Skuldatryggingauppboð að hefjast, Landsbanki fyrstur undir hamarinn 3. nóvember 2008 13:10
Uppboð á skuldatryggingum íslensku bankanna hefjast í þessari viku. Landsbankinn er fyrstur undir hamarinn á morgun. Reiknað er með að þeir sem seldu tryggingarnar og ábyrgðust þar með lán til bankanna þurfi að borga 97% af andvirði lánanna. Uppboðið ákveður hve mikill hluti af tryggingunum verður greiddur en eins og áður hefur komið fram á visir.is ganga skuldabréf íslensku bankanna kaupum og sölum erlendis á 3 aura fyrir krónuna eða með 97% afföllum. Uppboðin verður haldið á vegum International Swaps and Derivatives Association (ISDA) og verða þetta fyrstu uppboð sinnar tegundar í Evrópu. Glitnir fer undir hamarinn á miðvikudag og Kaupþing á fimmtudag. Fjallað er um málið á Bloomberg-fréttaveitunni. Þar segir Tim Brunne lánasérfræðingur hjá UniCredit SpA í Munchen að miðað við markaðsverð íslensku bréfanna munu næstum ekkert fást upp í kröfur seljenda að tryggingunum. Yfir 160 bankar og fjárfestar hafa skráð sig fyrir uppgjöri á skuldatryggingum íslensku bankanna. Ekki er nákvæmlega vitað um hve stóra heildaruppjæð er að ræða en ISDA áætlar að hún nemi 55 milljörðum dollara að um 6.000 milljörðum kr.. Vogunarsjóðir, tryggingarfélög og bankar eru þeir sem venjulega kaupa og selja skuldatryggingar. Og þá annaðhvort til að tryggja að skuldabréf verði ekki gjaldfelld eða veðja á að félög geti ekki borgað skuldir sínar. Á Bloomberg er tekið dæmi af Primus Guaranty Ltd, tryggingarfélagi sem staðsett er á Bermúdaeyjum. Það seldi skuldatryggingar á lán til Kaupþings að uppbæð rúmlega 68 milljón dollara eða um 7 milljarða kr.. Það seldi einnig tryggingar á lán til Lehman Brothers, Freddie May og Fannie Mac samtals að uppbæð tæplega 300 milljónir dollara. Félagið segir að það eigi sjóð upp á 800 milljónir dollara til að mæta þessum ábyrgðum sem félagið situr uppi með.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eiginmaðurinn á von á sérstaklega flottri jólagjöf þetta árið Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Viðskipti erlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira